Heimsókn í Grýtubakka

Á þriðjudaginn fórum við í heimsókn á Grýtubakka til Júllu og Stebba að skoða hestana og fengum í leiðinni að sjá hænur, hunda og ketti. Börnin voru áhugasöm og vildu helst hlaupa frjáls um alla sveit. Að lokum bauð svo Júlla í kakó og köku eins og henni einni er lagið:)